26.5.2010
NÁMSKEIÐ Á NÆSTUNNI.
Námskeið vegna vottunar ökutækja:
Það verður haldið upprifjunarnámskeið vegna vottunar ökutækja (burðarvirki og hjólastillingar) fyrir þá aðila sem hafa heimildir til útgáfu slíkra vottorða í dag og hafa ekki sótt námskeið síðast liðin þrjú ár (endurútgáfa vottorða verður nú til fimm ára gegn reglubundnu eftirliti).
Námskeiðin verðahaldin eftir fjölda þátttakenda hverju sinni en nauðsynlegt er fyrir vottunaraðila sem vilja endurnýja vottunarheimild sína að skrá þáttöku á námskeiðin þar sem unnið er að uppfærslu á lista vottaðra hjólastöðu og burðarvirkis aðila.
Námskeiðin eru í samstarfi við Umferðarstofu en skráning á námskeiðin er hjá IÐUNNI fræðslusetri.
Þeir sem ekki hafa setið námskeið í hjólastillingum þá verður haldið námskeið mánudaginn 7. Júni.
Upprifjunarnámskeið um hjólastillingar:
Námskeiðin eru um 5 tímar hvert og fjöldi þátttakenda á hverju er takmarkaður
- 1. Farið er yfir lög og reglugerðir tengdar burðarvirki og hjólastillingum
- 2. Bíl er stillt upp á lyftu þar sem hjólastilling er ekki í lagi.
- 3. Þátttakendur fara yfir og skilgreina það sem ekki er í lagi og leiðir til úrbóta.
- 4. Þátttakendur svara nokkrum spurningum að loknu námskeiði um hjólastillingar og reglur sem endurspegla þekkingu viðkomandi og hæfni til að fylla út hjólastöðuvottorð.
Upprifjunarnámskeið burðarvirkis:
Námskeiðin eru um 5 tímar hvert og fjöldi þátttakenda á hverju er takmarkaður
- 1. Farið er yfir lög og reglugerðir tengdar burðarvirki og hjólastillingum
- 2. Bíl er stillt upp í bekk þar sem burðarvirki er ekki í lagi.
- 3. Þátttakendur fara yfir og skilgreina það sem ekki er í lagi og leiðir til úrbóta
- 4. Þátttakendur svara nokkrum spurningum að loknu námskeiði um burðarvirki og reglur sem endurspegla þekkingu viðkomandi og hæfni til að fylla út burðarvirkisvottorð.
Skráning: http://www.bilgrein.is/
Leit
Mynd














