Fyrirtækjaþjónusta
,,IÐAN býður fyrirtækjum fjölbreytta þjónustu sérsniðna að þörfum þeirra. Kannaðu málið á www.idan.is eða hafðu samband í síma 5906400”.
Fjárfesting í þekkingu og færni skilar sér í betri starfsmönnum og hagkvæmari rekstri!
Markmið fyrirtækja geta verið margvísleg í fræðslu- og starfsmannamálum. Hæfur starfsmaður er óhræddur við nýjungar og breytingar í rekstri. Hann hefur þekkingu til að vinna verk af öryggi og innan tímamarka, auk þess að takast á við þau vandamál sem upp koma. Hæfur starfsmaður veitir betri þjónustu sem eykur líkur á að viðskitptavinur þinn sé ánægður og komi til baka.
Þjónusta IÐUNNAR felst í:
- aðstoð við mat á fræðsluþörf,
- stuðning við mótun fræðslustefnu,
- lausnir sem taka mið af markmiðum fyrirtækisins,
- skipulag fræðslu og þjálfunar.
Fyrirtæki sem eiga aðild að IÐUNNI njóta umtalsverðrar niðurgreiðslu af kostnaði við námskeiðahald og fyrirtækjanámkeið. Með aðildinni er því hægt að nýta sér fjölmörg tækifæri til þess að ná fram betri og hagkvæmari rekstri án þess að kosta miklu til.
Hjá IÐUNNI starfa náms- og starfsráðgjafar sem bjóða upp á ókeypis viðtöl við starfsfólk aðildarfyrirtækja. Ráðgjöfin felst í að finna leiðir til þess að hvetja starfsmenn til að huga að sinni starfsþróun. Kannaðu málið og sendu okkur póst á idan@idan.is .
Leit
Mynd














