Fyrirtækjaþjónusta IÐUNNAR fræðsluseturs
Markmið fyrirtækja geta verið margvísleg í fræðslu- og starfsmannamálum. Hæfur starfsmaður er óhræddur við nýjungar og breytingar í rekstri. Hann hefur þekkingu til að vinna verk af öryggi og innan tímamarka, auk þess að takast á við þau vandamál sem upp koma. Hæfur starfsmaður veitir betri þjónustu sem eykur líkur á að viðskiptavinur þinn sé ánægður og komi til baka.
Þjónusta okkar við fyrirtæki felst í:
- þarfagreiningu fyrir fræðslu og færni,
- áætlun um fræðslu og stefnumótun í fræðslumálum
- við leggjum til lausnir, ýmist sérsniðnar eða finnum það sem hentar
- skipulagi og framkvæmd fræðslustefnu
Fyrirtæki sem eiga aðild að IÐUNNI njóta umtalsverðrar niðurgreiðslu af kostnaði við námskeiðahald og fyrirtækjanámskeið. Með aðildinni er því hægt að nýta sér fjölmörg tækifæri til þess að ná fram betri og hagkvæmari rekstri án þess að kosta miklu til.
Hjá IÐUNNI starfa náms- og starfsráðgjafar sem bjóða upp á ókeypis viðtöl við starfsfólk aðildarfyrirtækja. Ráðgjöfin felst í að finna leiðir til þess að hvetja starfsmenn til að huga að sinni starfsþróun. Kannaðu málið og sendu okkur póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Aðalskrifstofur IÐUNNAR fræðslusetur eru að Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
Bílgreinar IÐUNNAR fræðslusetur eru að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.
Fyrirtækjaþjónusta
IÐAN hefur hlotið