Hįrsnyrtiišn
Um nįmiš
Hársnyrtiiðn er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að veita almenna, faglega undirstöðumenntun í greininni, auka færni nemenda í meðferð hársnyrtivara og beitingu áhalda og tækja og gera nemendur færa um að veita þá alhliða þjónustu sem í boði er á hársnyrtistofum.
Meðalnámstími er fjögur ár, samtals fimm annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 168 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Hársnyrtiiðn er löggilt iðngrein og er kennd í Iðnskólanum í Hafnarfirði, Tækniskólinn, Verkmenntaskóla Austurlands og Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Helstu nįmsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. blástur, háralitun, hárgreiðsla, iðnfræði, iðnteikning, klipping, permanent og skeggsnyrting og rakstur.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Nįmstķmi
4 įrStarf
Leit
Mynd











