Húsasmíði
Um námið
Húsasmíði er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlast skilning, þekkingu og færni til að sinna allri smíðavinnu í bygginga- og mannvirkjaiðnaði hvort sem er verkstæðis- og innréttingavinna, úti- og innivinna á byggingastað eða viðgerða- og breytingavinna.
Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina, samtals fimm annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 172 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Húsasmíði er löggilt iðngrein og er kennd á eftirfarandi stöðum á landinu:
- Fjölbraut í Breiðholti,
- Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
- Fjölbrautaskóli Suðurlands
- Fjölbrautaskóli Suðurnesja
- Fjölbrautarskóli Vesturlands
- Iðnskólinn í Hafnarfirði
- Menntaskólinn Ísafirði
- Tækniskólinn
- Verkmenntaskólinn á Akureyri
- Verkmenntaskóli Austurlands
Helstu námsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. grunnteikning, inntéttingar, teikningar og verklýsingar, timburhús, trésmíði og verktækni grunnnáms.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Námstími
4 árStarf
Leit
Mynd











