Húsgagnasmiður
Um námið
Húsgagnasmíði er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að takast á við viðfangsefni iðngreinarinnar; að smíða, endurnýja og gera við húsgögn, innréttingar, hurðir, glugga, tréstiga og sinna fjölbreyttri sérsmíði úr gegnheilu tré og plötuefni.
Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina, samtals fimm annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 172 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Húsgagnasmíði er löggilt iðngrein og er kennd í Tækniskólinn og Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Helstu námsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. grunnteikning, inntéttingar, plötu- og grindarhúsgögn, teikningar og verklýsingar, timburhús, trésmíði og verktækni grunnnáms.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Námstími
4 árStarf
Leit
Mynd











