Kjötišn
Um nįmiš
Kjötiðn er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni sem kjötiðnaðarmönnum er nauðsynleg í störfum sínum s. s. kjötvinnslu frá móttöku sláturafurða til fullunninnar vöru, verkstjórn, sölu- og markaðsmál, vöruþróun og eftirlit með gæðum og hollustu.
Meðalnámstími er fjögur ár, samtals þrjár annir í skóla og 126 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 186 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Kjötiðn er löggilt iðngrein og er námið kennt í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi og Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Helstu nįmsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. fagfræði kjötiðna, hráefnisfræði í kjötiðnaði, kjötiðn, næringarfræði og tungumál fyrir matvæla- og veitingagreinar.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Nįmstķmi
4 įrStarf
Leit
Mynd











