Leišsögunįm
Um nįmiš
Leiðsögunám er sérhæft starfsnám sem tekur eitt ár og er fólgið í sérhæfðri fræðslu og starfsþjálfun þeirra sem vilja búa sig undir störf sem leiðsögumenn ferðafólks.
Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að annast almenna leiðsögn, fyrir ferðafólks, innanlands og að veita þeim sérmenntun á sviði göngu- og afþreyingarleiðsagnar.
Námið er alls 37 einingar og skiptist í þrjá hluta; kjarna, kjörsvið og val. Nám í kjarna, 17 einingar, er sameiginlegt fyrir alla. Nám á kjörsviði, 16 einingar, felur í sér sérhæfingu á einu af eftirtöldum sviðum: almenn leiðsögn, gönguleiðsögn - að sumri, gönguleiðsögn - að vetri og afþreyingar- (áhættu)leiðsögn . Nám í vali eru 4 einingar.
Nám leiðsögumann er kennt í Leiðsöguskóla Íslands við Menntaskólan í Kópavogi.
Helstu nįmsgreinar
Kjarnagreinar s.s. bókmenntir og listir, jarðfræði, leiðsögutækni – samskipti, tungumálanotkun og vettvangsnám.
Kjörsviðgreinar s.s. ferðamennska, svæðalýsingar og vettvangsnám.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Nįmstķmi
1 įrStarf
Leit
Mynd









