Beint į leišarkerfi vefsins

Matreišsla

Um nįmiš

Matreiðsla er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist nauðsynlega þekkingu, skilning og færni til að svara kröfum atvinnulífsins um gæði í matreiðslu, hollustu, nýjungar og fjölbreytni.
Meðalnámstími er fjögur ár, samtals þrjár annir í skóla og 126 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 186 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Matreiðsla er löggilt iðngrein og er kennd í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. og í Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Helstu nįmsgreinar

Sérgreinar tengdar iðninni s.s. fagfræði matreiðslu, hráefnisfræði í matreiðslu, matreiðsla, næringarfræði og tungumál fyrir matvæla- og veitingagreinar.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.

Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.

Framhaldsmenntun

Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.

Nįmstķmi

4 įr

Starf



Slóšin mķn:

Nįm

Heim

Forsķša IŠUNNARIDAN.IS

Stjórnborš

Minnka letur Upphaflegt letur Stękka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd