Málaraiðn
Um námið
Málaraiðn er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að takast á við alla algenga verkþætti iðngreinarinnar, allt frá mati á ástandi flatar þar til æskilegri lokaáferð er náð. Einnig að útfæra ýmsa sérhæfða verkþætti eins og sandspörslun bygginga, skrautmálun, skiltagerð og ýmsar útfærslur á eldra handverki s.s. málun marmara- og viðarlíkinga.
Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina, samtals fjórar annir í skóla og 96 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 176 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Málari er löggilt iðngrein og er kennd í Tækniskólanum og Verkmenntaskólanum á Akuryeri.
Helstu námsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. grunnteikning, innimálun, lita- og formfræði, skreytimálun og skiltagerð, teikning og skrift og verktækni grunnnáms.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Námstími
4 árStarf
Leit
Mynd











