Mśraraišn
Um nįmiš
Múraraiðn er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að takast á við þau viðfangsefni sem tilheyra greininni, m.a. grunngröft og sprengingar, hvers konar steypuvinnu, hleðslu bygginga og mannvirkja, múrhúðun, lagnir í gólf og gólfaslípun, lagnir og festingar flísa og náttúrusteins, járnalagnir og einangrun undir múrvinnu.
Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina, samtals fimm annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 172 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Múraraiðn er löggilt iðngrein og er kennd í Tækniskólinn.
Helstu nįmsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. flísa- og steinlagnir, grunnteikning, hleðsla og múrhúðun inni, járnbending steinsteypu, múrhúðun og múrkerfi utanhúss, teikningar og verklýsingar og verktækni grunnnáms.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Nįmstķmi
4 įrStarf
Leit
Mynd











