Beint á leiðarkerfi vefsins

Pípulagnir

Um námið

Pípulagnir er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að leggja hita-, neysluvatns- og frárennsliskerfi og ýmis sérhæfð kerfi í byggingar og mannvirki, veitukerfi fyrir vatns- og hitaveitur og frárennslislagnir utanhúss, ásamt uppsetningu tækja og búnaðar sem tengist og stýrir þessum kerfum.
Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina, samtals fjórar annir í skóla og 96 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 175 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Pípulagnir er löggilt iðngrein og er kennd í Iðnskólanum í Hafnarfirði og Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Helstu námsgreinar

Sérgreinar tengdar iðninni s.s. frárennsliskerfi, hitakerfi, neysluvatnskerfi, sérhæfð lagnakerfi, stýringar og tæknibúnaður, teikningar og verklýsingar og verktækni grunnnáms.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.

Framhaldsmenntun

Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.

Námstími

4 ár

Starf



Slóðin mín:

Nám

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd