Skósmķšaišn
Um nįmiš
Skósmíði er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni til að annast viðgerðir á hvers kyns skófatnaði og sinna öðrum viðfangsefnum sem tilheyra iðngreininni. Meðalnámstími er þrjú ár, samtals tvær annir í skóla og 96 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 131 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Helstu nįmsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. fríhendisteikning, grunnteikning og véla- og tækjafræði.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Nįmstķmi
4 įrStarf
Leit
Mynd









