Slátrun
Um námið
Meginmarkmið náms í slátrun er að nemendur öðlist þekkingu og færni sem slátrurum er nauðsynleg í störfum sínum. Ekki er skylt að hafa lokið grunnnámi í matvæla- og veitingagreinum.
Meðalnámstími er eitt ár, ein önn í skóla og 24 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 40 einingar og lýkur með fagprófi er veitir rétt til starfa í iðninni.
Nám í slátrun er kennt í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi.
Helstu námsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. grófbrytjun og pökkun, hráefnisfræði í kjötiðnaði og slátrun.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Námstími
1 árStarf
Leit
Mynd











