Beint į leišarkerfi vefsins

Bifreišasmķši

Um nįmiš

Bifreiðasmíði er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þá þekkingu og færni sem bifreiðasmiðum er nauðsynleg í störfum sínum.
Meðalnámstími er þrjú og hálft ár að meðtöldu grunnnámi bíliðna, samtals fimm annir í skóla og 48 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 144 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Bifreiðasmíði er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtsskóla og grunndeildina er hægt að læra í Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Helstu nįmsgreinar

Sérgreinar tengdar iðninni s.s. plasthlutir, rafteikning, réttingar, skörun og yfirbygging, teikning og smíði.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.

Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.

Framhaldsmenntun

Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.

Nįmstķmi

3 1/2 įr

Starf



Slóšin mķn:

Nįm

Heim

Forsķša IŠUNNARIDAN.IS

Stjórnborš

Minnka letur Upphaflegt letur Stękka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd