Beint į leišarkerfi vefsins

Stįlsmķši

Um nįmiš

Meginmarkmið námsins er að veita nemendum þekkingu og færni til þess að takast á við þau viðfangsefni sem stálsmiðir inna af hendi, þ.e. nýsmíði og viðhald málm- og stálmannvirkja úr mismunandi gerðum málmplatna, stangarefnis og rörum.
Nám í málmiðngreinum er skipulagt með þeim hætti að nemendur innritast í sameiginlegt tveggja ára grunnnám og að því loknu í sérnám í málmiðngreinunum (blikksmíði, rennismíði, vélvirkjun eða stálsmíði).

Þessir skólar kenna grunnnám málmiðna: Tækniskólinn, Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Menntaskólinn á Ísafirði, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Verkmenntaskóli Austurlands, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Iðnskólinn í Hafnarfirði.

Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi málmiðngreina, samtals sex annir í skóla og 60 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 177 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Stálsmíði er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtsskóla og Iðnskólanum í Hafnarfirði og Verkmenntaskólanum á Akureyri.  

Helstu nįmsgreinar

Sérgreinar tengdar iðninni s.s. efnisfræði, grunnteikning, handavinna, hlífðargassuða, plötuvinna og rennismíði.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.

Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.

Framhaldsmenntun

Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.

Nįmstķmi

4 įr

Starf



Slóšin mķn:

Nįm

Heim

Forsķša IŠUNNARIDAN.IS

Stjórnborš

Minnka letur Upphaflegt letur Stękka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd