Beint į leišarkerfi vefsins

Tękniteiknun

Um nįmiš

Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni sem tækniteiknurum er nauðsynleg í störfum sínum við gerð teikninga og frágang ýmis konar hönnunarvinnu á teiknistofum fyrirtækja, ráðgefandi verkfræðinga, arkitekta, ríkisstofnana, bæjarfélaga o.fl. Ennfremur að gera nemendum kleift að annast kerfisstjórnun teiknikerfa, framsetningu og kynningu gagna, skipulagningu og stjórnun skjalavistunar og önnur sérhæfð teikni- og skrifstofustörf.
Meðalnámstími er þrjú ár, sex annir í skóla.
Námið er alls 109 einingar og lýkur með formlegri útskrift og prófskírteini sem veitir rétt til að nota starfsheitið tækniteiknari og starfa sem slíkur innan greinarinnar.

Tækniteiknari er kennt í Iðnskólanum í Hafnarfirði.

Helstu nįmsgreinar

Sérgreinar tengdar starfinu s.s. arkitektateikning, burðarvirkis- og byggingahlutateikning, raflagnateikning, tölvuteikning og þrívíddarteikning.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.

Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.

Framhaldsmenntun

Viðbótarnám til stúdentsprófs samkvæmt reglum aðalnámskrár framhaldsskóla eða annars konar undirbúningur undir nám í tækni- og/eða háskólum.

Nįmstķmi

3 įr

Starf



Slóšin mķn:

Nįm

Heim

Forsķša IŠUNNARIDAN.IS

Stjórnborš

Minnka letur Upphaflegt letur Stękka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd