Beint á leiðarkerfi vefsins

Útstillingar

Um námið

Útstillingar eru starfsnám að loknu grunnskólaprófi. Námið tekur tvö ár og skiptist í fjórar annir.
Námið skiptist í bóklegt og verklegt nám sem fer fram innan veggja skólans en hluti verklega námsins fer einnig fram á starfsvettvangi síðustu tvær annirnar. Í fyrstu vinna nemendur að óundirbúnum útstillingaverkefnum en læra jafnframt fagleg grunnatriði. Á síðara námsári vinna nemendur undir handleiðslu fagfólks hjá verslunum.

Samvinna atvinnulífsins og skólans er í mótun. Nám í útstillingum er kennt í Iðnskólanum í Hafnarfirði

Helstu námsgreinar

Almennar bóklegar greinar eru: danska, enska, íslenska, íþróttir, lífsleikni, náttúruvísindi og stærðfræði, alls 28 einingar. Faggreinar eru: efnisfræði og letur, faglegar- og verklegar útstillingar, grunnteikning, hönnunarteikning, líkanagerð, samtímamenning í sögulegu samhengi, teikning, teikning og merking, tjáning og tæki, tölvugrafík, alls 57 einingar.

Námstími

2 ár

Starf



Slóðin mín:

Nám

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd