Veggfóðrun og dúkalögn
Um námið
Veggfóðrun er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að undirbúa gólf, veggi, loft, töflur, hurðir, borð og aðra fleti inni og úti fyrir lagningu dúka, platna, teppa og striga.
Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina, samtals þrjár annir í skóla og 120 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 176 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Veggfóðrun / dúkalagnin er löggilt iðngrein og er kennd í Tækniskólinn.
Helstu námsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. dúka- og plötulögn, vegg- og loftalagnir og verktækni grunnnáms.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Námstími
4 árStarf
Leit
Mynd











