Beint á leiðarkerfi vefsins

Vélvirkjun

Um námið

Meginmarkmið námsins er að veita nemendum þekkingu og færni til þess að takast á við þau viðfangsefni sem vélvirkjar inna af hendi, þ.e. uppbyggingu og viðhald véla, kælikerfa og loftstýringa, bilanaleit og stýringar.
Nám í málmiðngreinum er skipulagt með þeim hætti að nemendur innritast í sameiginlegt tveggja ára grunnnám og að því loknu í sérnám í málmiðngreinunum (blikksmíði, rennismíði, vélvirkjun eða stálsmíði).

Þessir skólar kenna grunnnám málmiðna: Tækniskólinn, Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Menntaskólinn á Ísafirði, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Verkmenntaskóli Austurlands, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Iðnskólinn í Hafnarfirði.

 

Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi málmiðngreina, samtals sex annir í skóla og 60 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 177 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Vélvirkjun er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtsskóla, Iðnskólanum í HafnarfirðiFjölbrautaskólanum á Akranesi og Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Helstu námsgreinar

Sérgreinar tengdar iðninni s.s. aflvélavirkjun, efnisfræði, grunnteikning, handavinna, rennismíði og vélfræði.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.

Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.

Framhaldsmenntun

Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.

Námstími

4 ár

Starf



Slóðin mín:

Nám

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd