Beint á leiđarkerfi vefsins

Bifvélavirkjun

Um námiđ

Bifvélavirkjun er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þá þekkingu og færni sem bifvélavirkjum er nauðsynleg í störfum sínum.
Meðalnámstími er þrjú og hálft ár að meðtöldu grunnnámi bíliðna, samtals fimm annir í skóla og 48 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 144 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Bifvélavirkjun er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtsskóla og Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Helstu námsgreinar

Sérgreinar tengdar iðninni s.s. aflrás, hemlar, hreyflar, rafeindatækni, rafmagn, stýri og fjöðrun, verkstæðisfræði og yfirbyggingar.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.

Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.

Framhaldsmenntun

Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.

Námstími

3 1/2 ár

Starf



Slóđin mín:

Nám

Heim

Forsíđa IĐUNNARIDAN.IS

Stjórnborđ

Minnka letur Upphaflegt letur Stćkka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd