Beint á leiðarkerfi vefsins

Bílamálun

Um námið

Bílamálun er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þá þekkingu og færni sem bílamálurum er nauðsynleg í störfum sínum.
Meðalnámstími er þrjú ár að meðtöldu grunnnámi bíliðna, samtals fjórar annir í skóla og 32 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 114 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Bílamálun er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtsskóla og grunndeildin er kennd í Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Helstu námsgreinar

Sérgreinar tengdar iðninni s.s. efnisfræði, litafræði, ómálmkennt efni, teikning og hönnun, vinnuaðferðir og tækni.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.

Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.

Framhaldsmenntun

Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.

Námstími

3 ár

Starf



Slóðin mín:

Nám

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd