Rafvirkjun
Um námið
Rafvirkjun er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þá færni og þekkingu sem rafvirkjum er nauðsynleg við störf sín.Nemendur sem innritast í sérnám til sveinsprófs í rafvirkjun þurfa að hafa lokið grunnnámi rafiðna.
Nám til sveinsprófs í rafiðngreinum tekur að jafnaði 4 ár og skiptist í nám í skóla og starfsþjálfun á vinnustað.
Um er að ræða tvenns konar skipulag :
1. Verknámsleið þar sem meðalnámstími í skóla er 7 annir að meðtöldu grunnnámi auk 24 vikna starfsþjálfunar.
2. Samningsbundið iðnnám þar sem meðalnámstími í skóla er 6 annir að meðtöldu grunnnámi auk 48 vikna starfsþjálfunar.
Í rafvirkjun er hægt að velja á milli námsleiða
Rafvirkjun er löggilt iðngrein sem er kennd í Tækniskólanum, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Iðnskólanum í Hafnarfirði, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi, Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra á Sauðárkrók, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Nánari upplýsingar fást hjá Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins Stórhöfða 31. 110 Reykjavík sími 580 5252
Helstu námsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. forritanleg raflagnakerfi, raflagnir, rafvélar, reglugerðir og staðlar, lýsingartækni, stýringar og rökrásir, tölvur og nettækni,rafeindatækni og mælingar, raflagnateikningar og smáspennuvirki.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum sjá Rafiðnaðarskólinn.Námstími
4 árStarf
Leit
Mynd









