Beint á leiğarkerfi vefsins

Blikksmíği

Um námiğ

Meginmarkmið námsins er að veita nemendum þekkingu og færni til að takast á hendur þau viðfangsefni sem blikksmiðir inna af hendi þ.e. nýsmíði og viðhald úr þunnmálmi, smíði loftræstikerfa, þéttingu húsa, mismunandi klæðninga á þökum og húsum.
Nám í málmiðngreinum er skipulagt með þeim hætti að nemendur innritast í sameiginlegt tveggja ára grunnnám og að því loknu í sérnám í málmiðngreinunum (blikksmíði, rennismíði, vélvirkjun eða stálsmíði).

Þessir skólar kenna grunnnám málmiðna: Tækniskólinn, Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Menntaskólinn á Ísafirði, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Verkmenntaskóli Austurlands, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Iðnskólinn í Hafnarfirði.


Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi málmiðngreina, samtals sex annir í skóla og 60 vikna starfsþjálfun. Námið er alls 177 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Blikksmíði er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtskóla og í Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Helstu námsgreinar

Sérgreinar tengdar iðninni s.s. efnisfræði, grunnteikning, handavinna, iðnteikning, loftræsti- og/eða hreinsitækni, plötuvinna og rennismíði.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.

Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir

Framhaldsmenntun

Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.

Námstími

4 ár

Starf



Slóğin mín:

Nám

Heim

Forsíğa IĞUNNARIDAN.IS

Stjórnborğ

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda şessa síğu Prenta şessa síğu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd