Framreišsla
Um nįmiš
Framreiðsla er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni sem framreiðslumönnum er nauðsynleg í störfum sínum s. s. móttöku og umgengni við gesti, undirbúning borðhalds, þjónustu og ráðgjöf, innkaup og móttöku vöru, gerð mat- og vínseðla og skipulagningu og stjórnun starfa í sal og í vínstúku.
Meðalnámstími er þrjú ár, samtals þrjár annir í skóla og 80 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 140 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Framleiðsluiðn er löggilt iðngrein og er námið kennt í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi og við Verkmenntaskólann á Akureyri.
Helstu nįmsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. fagfræði framreiðslu, framreiðsla, næringarfræði og tungumál fyrir matvæla- og veitingagreinar.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Nįmstķmi
3 įrStarf
Leit
Mynd











