Gull- og silfursmķši
Um nįmiš
Gull- og silfursmíði er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að annast alla helstu þætti sem við koma iðninni.
Meðalnámstími er fjögur ár, samtals fimm annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 170 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Gull- og silfursmiðir er löggilt iðngrein og er kennd í Tækniskólinn.
Helstu nįmsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. hönnun í gull- og silfursmíði, silfursmíði, steinaísetning, tölvustudd hönnun, tölvutækni í hönnun og markaðssetningu, verkleg gull- og silfursmíði og víravirki.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla – Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Nįmstķmi
4 įrStarf
Leit
Mynd











