Beint á leiğarkerfi vefsins

Snyrtifræğingur

Hefur þá áhuga á:
- förðun,
- umhirðu húðar
- að vinna með höndunum,
- fjölbreyttu starfi,
- að vera í samskiptum við fólk,
- að vera listræn,
- samstarfi við aðra.

Þá gæti starf snyrtifræðings verið fyrir þig.

Snyrtifræðingur starfar við að snyrta, farða og sinna ráðgjöf og fræðslu um snyrtingu og snyrtivöruval. Snyrtifræðingar þurfa að hafa gaman að mannlegum samskiptum því þeir vinna í náinni snertingu við fólk.

Það sem snyrtifræðingur gerir er að:
- vinna í náinni snertingu við viðskiptavinin og veita þeim persónulega þjónustu.
- snyrti viðskiptavina sína með t.d. andlitsbaði, húðhreinsun, handsnyrtingu, fótsnyrtingu, augnhára- og
  augnbrúnalitun, háreyðingu og förðun.
- taka á móti viðskipatavini og kynna sér óskir hans,
- greina ástand húðar, ákveða meðferð samkvæmt því og vísa til húðsjúkdómalæknis ef þess er þörf.
- hreinsa húð, hita vöðva og veita uppbyggjandi eða rakagefandi meðferð.
- ráðleggja við val á snyrtivörum.
- veita slökunarnudd, alhliða líkamsnudd eða partnudd til að örva virkni húðfruma, slaka á spenntum
  vöðvum eða koma í veg fyrir að vöðvar stífni.
- snyrta neglur á fingrum og tám, ásamt því að setja á gervineglur.
- farða andlit hvort sem um er að ræða lýtaförðun eða almenna förðun, s.s. dag-, brúðar-, ljósmynda-,
 
tísku- og samkvæmisförðun. Einnig er hægt að sérhæfa sig í förðun í leikhúsi, sjónvarpi eða
 
kvikmyndum.
- Veita einstaklingum og hópum fræðslu um mataræði, hreinlæti, umhirðu og hreinsun húðar.
- kynna nýjungar á snyrtivörumarkaði og gefa ráð um förðun með hliðsjón af andlitsfalli og litarhætti.

Snyrtifræði er löggilt iðngrein og er kennd í Fjölbraut í Breiðholti.

Vinnustaðir snyrtifræðinga eru eftirfarandi:
- snyrtistofur.
- í snyrtivöruverslun.
- við kynningar- og verslunarstörf.
- heildsölum sem selja vörur sem tengjast starfinu.

Til að kanna laun snyrtifræðinga er best að skoða heimasíðu SAMIÐNAR.

Námiğ



Slóğin mín:

Störf

Heim

Forsíğa IĞUNNARIDAN.IS

Stjórnborğ

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda şessa síğu Prenta şessa síğu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd