Beint á leiğarkerfi vefsins

Úrsmiğur

Hefur þú áhuga á:
- úrum, gangverki og hlutum úr gulli, silfri eða öðrum málmum.
- endurnýjun og smíðum á varahlutum í úr og klukkur.

- hugmyndaþróun, hönnun og framleiðslu.
- samskiptum við fólk. 

Þá gæti starf úrsmíði verið fyrir þig. 

Úrsmiður annast viðgerðir, viðhald og hreinsanir á úrum og klukkum. Úrsmiðir endurnýja eða smíða varahluti í gömul úr og klukkur, fóðra upp vegna slits, skipta um fjaðrir og skeyta saman ef þarf. Úrsmiðir veita ráð við val á úrum og klukkum.

Það sem úrsmiður gerir er að:
- hanna, smíða og gera við úr og klukkur.
- grafa letur.
- húða málm með mismunandi aðferðum.
- þróa, hanna og smíða úr og vinna út frá eigin hugmyndum og annarra.
- gerir við flestar gerðir úra.
- þjónusta viðskiptavini af lipurð, háttvísi og kunnáttu.
- nota listrænt innsæi og verklega færni við vinnu sína. 

Úrsmíði er löggilt iðngrein og er kennd erlendis en hægt er að fara á námssamning á Íslandi.Nám í úrsmíði tekur fjögurár. Ekki er unnt að læra úrsmíði hérlendis. Flestir sem lært hafa úrsmíði hin síðari ár hafa lært við Teknisk Skole Ringsted (TSR) í Danmörku. Námið við TSR er byggt þannig upp að sækja þarf skólann í samtals 80 vikur í sjö lotum en samhliða fer fram verkleg þjálfun í fyrirtæki eða við skólann.

Vinnustaðir úrsmiða eru eftirfarandi:
- úrsmíðaverkstæðum.
- verslunum.
 

Til að kanna laun nema í úrsmíði er best að skoða heimasíðu SAMIÐNAR

Námiğ



Slóğin mín:

Störf

Heim

Forsíğa IĞUNNARIDAN.IS

Stjórnborğ

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda şessa síğu Prenta şessa síğu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd