Matsveinn
Hefur þá áhuga á:
- matreiðslu
- matreiða fyrir lítil mötuneyti til sjós og lands,
- stjórnun mötuneytis
- heimilismatseld.
Þá gæti starf matsveins verið fyrir þig.
Matsveinar hafa þrengra starfsvið en matreiðslumenn þar sem þeir starfa aðallega til sjós. Matsveinar starfa á minni fiski og flutningaskipum og í litlum mötuneytum.
Það sem matsveinn gerir er að:- taka á móti hráefni og meðhöndlar það til geymslu.
- vinna eftir uppskriftum.
- semja matseðla með hliðsjón af hollustu og næringargildi.
- elda alla rétti sem eru á boðstólum í eldhúsum á minni fiski- og flutningaskipum og litlum mötuneytum.
- þjóna fólki.
- annast innkaup á hráefni og öðrum vörum fyrir eldhúsið.
Nám í matsveins er kennt í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi og Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Vinnustaðir matreiðslumanna eru eftirfarandi:
- fiskiskip,
- flutningaskip,
- mötuneyti,
- skólar.
Til að kanna laun matsveina er best að skoða heimasíðu MATVÍS .
Námiğ
Leit
Mynd









