Smurbrauðsmaður
Hefur þá áhuga á:
- að útbúa veislumat s.s. pinnamat og snittur.
- brauðrétti.
- framsetningu og skreytingum á hlaðborð.
- gerð smurbrauðsmatseðils.
Þá gæti starf smurbrauðsmans verið fyrir þig.
Smurbrauðsmaður starfar þar sem boðið er upp á hvers kyns brauðrétti svo sem í mötuneytum, á hótelum, gistiheimilum, veitingastöðum, kaffihúsum og krám.
Það sem smurbrauðsmaður gerir er að:
- sjá um innkaup á hráefni, móttökueftirlit og frágang á vöru.
- býr til hvers kyns brauðrétti og smárétti fyrir hin ýmsu tilefni s.s.samlokur, brauðsneiðar, snittur, pinnamat, brauðtertur.
- leggja áherslu á gæði og nýtingu hráefnis.
- útbýr smurbrauðsseðli eftir viðurkenndum faglegum reglum og eftir þeirri fjölbreytni sem krafist er á vinnustaðnum.
- útbúa hádegisverðarrétti, smárétti, salatrétti.
- setja fram hráefnið á smekklegan hátt með tillit til úlits.
- skipuleggja og útbúa framsetningu hlaðborða með heitum og köldum réttum ásamt morgunverðarhlaðborði.
Nám í smurbrauði er kennt í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi.
Vinnustaðir smurbrauðsmanna eru eftirfarandi:
- smurbrauðsstofur
- veitinga- og veisluþjónustu,
- mötuneyti,
- hótel,
- gistiheimili,
- veitingastaðir,
- kaffihús,
- krár.
Til að kanna laun smurbrauðsmanna er best að skoða heimasíðu MATVÍS .
Námið
Leit
Mynd









