Beint á leiğarkerfi vefsins

Ağstoğarşjónn

Hefur þá áhuga á:
- að mannlegum samskiptum,
- borðskreytingum,
- undirbúningi borðhalds og veisluhalda.

Þá gæti starf aðstoðarþjóns verið fyrir þig.

Aðstoðarþjónn sinnir öllum algengum störfum í veitingasal og vínstúku.

Það sem aðstoðarþjónn gerir er að:
- undirbúa borðhald og framreiðslu veitinga s.s. dúkar borð, raðar borðbúnaði, skreytir borð.
- taka á móti gestum.
- vísa þeim til sætis og afhenda matseðla.
- þjónusta gesti og ráðleggja þeim.
- veita upplýsingar um matinn sem er á boðstólnum s.s. hráefni og eldunaraðferð.
- taka niður pöntun gesta og ber fram veitingarnar.
- blöndun drykkja, áfengra og óáfengra.
- sjá um að gestum líði vel og fái þá þjónustu sem því líkar.
- útbúa reikninga og taka við greiðslu.

Nám aðstoðarþjónns er kennt í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi og við Verkmenntaskólann á Akureyri.

Vinnustaðir aðstoðarþjóns eru eftirfarandi:
- veitingahús,
- hótel,
- veisluþjónusta,
- kaffihús,
- flugvélar,
- skemmtiferðaskip,
- heildsölum.
 

Til að kanna laun aðstoðarþjóns er best að skoða heimasíðu MATVÍS .  

Námiğ



Slóğin mín:

Störf

Heim

Forsíğa IĞUNNARIDAN.IS

Stjórnborğ

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda şessa síğu Prenta şessa síğu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd