Beint á leiğarkerfi vefsins

Bakari

Hefur þá áhuga á:
- bakstri á tertum, brauði og kökum,
- sætabrauði og kexi,
- eftirréttum,
- súkkulaði,
- skreytingar,
- veisluþjónustu,
- skapandi starfi.

Þá gæti starf bakara verið fyrir þig.

Bakarar vinna á stöðum þar sem framleiddar eru brauðvörur, sætabrauð, kökur, tertur, konfekt og eftirréttir.

Það sem bakari gerir er:
- að vinna við brauð-, köku-, konfekt- og eftirréttagerð.
- að setja deig í form eða mótar það í höndum.
- að hanna skreytingar og skreyta tertur, kökur og eftirréttir.
- að sjá um veislur og hlaðborð.
- að blanda lyf hjá lyfjafyrirtækjum.
- að starfa sjálfstætt á vinnustað sínum.
- að hafa yfirumsjón með með innkaupum, blöndun hráefnis, vinnslu og pökkun.
- ábyrgur fyrir hreinlæti á vinnustað.
- að mæla hráefni til framleiðslunnar.

Bakari er löggilt iðngrein og er námið kennt í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi og Verkmenntaskólann á Akureyri.

Vinnustaðir bakara eru eftirfarandi:
- bakarí,
- kökugerðarhús,
- veitingahús,
- hótel,
- sælgætisgerð,
- kexverksmiðju,
- fyrirtæki sem framleiða hálfunna vörur s.s. pítsubotna,
- lyfjafyrirtæki.
 

Til að kanna laun bakara er best að skoða heimasíðu MATVÍS .

 

Námiğ



Slóğin mín:

Störf

Heim

Forsíğa IĞUNNARIDAN.IS

Stjórnborğ

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda şessa síğu Prenta şessa síğu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd