Grafískur miğlari
Hefur þú áhuga á:
- framsetningu efnis fyrir prent-, net- og skjámiðla,
- grafískri hönnun,
- umbroti,
- uppsetningu á myndum og texta,
- margmiðlun og textameðferð,
- stafræna uppbyggingu mynda og litstýringu.
Þá gæti starf grafiskra miðlara (prentsmiðs) verið fyrir þig.
Grafískur miðlari (prentsmiður) sér um uppsetningu á myndum og textum til birtingar.
Það sem grafískur miðlari (prentsmiður) gerir er:
- móttöku á fjölmiðlaefni, texta og myndefni.
- uppsetning á myndum og texta.
- gengur frá efni til prentunar eða birtingar.
- vinnur með leturgerðir og stílbrigði.
- umbrot á prentefni.
Grafísk miðlun (prentsmíði) er löggilt iðngrein og er kennd í Tækniskólanum.
Vinnustaðir grafískra miðlara (prentsmiða) eru eftirfarandi:
- fjölmiðlar,
- auglýsingastofur,
- prentsmiðjur,
- útlitshönnun fyrir skjámiðla.
Til að kanna laun grafískra miðlara er best að skoða http://fbm.is/kjaramal.
Námiğ
Leit
Mynd









