Hársnyrtir
Hefur þá áhuga á:
- tísku í litum og stíl,
- að vinna með höndunum,
- fjölbreyttu starfi,
- að vera í samskiptum við fólk,
- að vera listræn,
- samstarfi við aðra.
Þá gæti starf hársnyrtis verið fyrir þig.
Hársnyrtir snyrtir hár og veitir ráðgjöf um hirðu þess á hárgreiðslu- eða rakarstofu og hefur auk þess oft til sölu ýmsar hársnyrtivörur.Það sem hársnyrtir gerir er að:
- taka á móti viðskiptavini, kynna sér óskir hans, skoða hárið, meta hvaða meðhöndlun hentar því með hliðsjón af ástandi og gerð, gefur ráð um þvotta- og lagningarefni og annað er lýtur að hárhirðu, þvær hárið og nærir ef þörf krefur.
- velja klippingu í samráði við viðskiptavin með hliðsjón af andlitsfalli, höfuðlagi og tísku,
- klippa hár og snyrta það, þurrka það og veita ráð um hvernig eigi að sjá um það.
- lita hár með því að bera í það lit á mismunandi hátt eftir því hvort um er að ræða strípur-, parta-, rótar eða heillitun.
- leggja, blása og greiða hár þannig að það liggi eins og viðskiptavinur óskar.
- selja hársnyrtivörur og leiðbeina viðskiptavinum um notkun þeirra.
- fylgist með tískustraumum í faginu og nýjungum.
- þjónusta viðskiptavini af miklum metnaði.
Hársnyrtiiðn er löggilt iðngrein og er kennd í Iðnskólanum í Hafnarfirði, Tækniskólinn, Verkmenntaskóla Austurlands og Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Vinnustaðir hársnyrta eru eftirfarandi:
- hárgreiðslustofur.
- rakarastofur.
- heildsölum sem selja vörur sem tengjast starfinu.
Til að kanna laun hársnyrta er best að skoða heimasíðu SAMIÐNAR.
Hárskeri rakar og snyrtir skegg karla, auk þess að klippa og snyrta hár þeirra
Námiğ
Leit
Mynd











