Beint á leiðarkerfi vefsins

Húsasmiður

Hefur þá áhuga á:
- að vinna með höndunum,
- að vinna úti og inni,
- að skapa og framkvæma,
- að smíða.

Þá gæti starf húsasmiðs verið fyrir þig.

Húsasmiður vinnur mjög fjölbreytt starf. Hann vinnur við nýjar byggingar og gamlar, bæði að utan og innan. Einnig getur hann unnið á trésmíðaverkstæði eða við að smíða brýr og virkjanir. Störf húsasmiða eru fjölbreytt og má nánast segja að þeir smíði allt sem smíða þarf úr tré bæði innan húss og utan.

Það sem húsasmiður gerir er að:
- vinna eftir teikningum arkitekta, verkfræðinga eða annarra viðurkenndra hönnuða.
- smíða steypumót fyrir hús og önnur mannvirki.
- smíða vinnupalla.
- smíða þök, leggur pappa og járn á þök, gengur frá þakköntum húsa. 
- setja glugga og hurðir í hús og glerja glugga. 
- klæða hús að utan, einangrar hús. Meðhöndlar yfirborð alls trévirkis utan húss. 
- smíðar grind fyrir timburhús t.d. sumarhús.
- setja upp girðingar, sólpalla og glerskála. 
- klæða gólf t.d. leggur parket á gólf. 
- smíða og setja upp tréstiga. 
- smíðar og sjá um uppsetningu á innréttingum t.d. eldhús- og baðinnréttingar. 
- gera við og breyta gömlum húsum, bæði stein- og timburhús. 
- greina fúaskemmdir og gerir við þær.
- þekkja húsfriðunarlögin og byggingasögulegt gildi þeirra. 
- smíða og gera við stærri mannvirkja eins og brýr, virkjanir og hafnir. 
- vinna við virkjunarframkvæmdir. 

Húsasmíði er löggilt iðngrein og er kennd á eftirfarandi stöðum á landinu:
- Fjölbraut í Breiðholti,
-
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
- Fjölbrautaskóli Suðurlands
- Fjölbrautaskóli Suðurnesja
- Fjölbrautarskóli Vesturland
-
Iðnskólinn í Hafnarfirði
- Menntaskólinn Ísafirði
- Tækniskólinn

- Verkmenntaskólinn á Akureyri

- Verkmenntaskóli Austurlands

Vinnustaðir húsasmiða eru eftirfarandi:
- hjá byggingafyrirtækjum,
- hjá húsasmíðameisturum ,
- á trésmíðaverkstæðum,
- sem söluráðgjafar hjá bygginarverslunum,
- stjórnunarstörf á byggingarvinnustöðum.

Til að kanna laun húsasmiða er best að skoða heimasíðu SAMIÐNAR

Námið



Slóðin mín:

Störf

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd