Bifreiğasmiğur
Hefur þá áhuga á:
- bílum,
- bílabreytingum,
- hanna og teikna bíla og innréttingar þeirra,
- vinnu við málm s.s. sjóða og rétta.
Þá gæti starf bifreiðasmiðar verið fyrir þig.
Bifreiðasmiðir vinna aðallega á bílaverkstæðum eða fyrirtækjum sem sinna réttingum á bílum, nýsmíði og breytingum á bifreiðum.
Það sem bílasmiður gerir er:
- að smíða yfirbyggingar og innréttingar í bíla, bæði nýsmíði og breytingar.
- að hanna eða gera uppdrátt af yfirbyggingu til að ökutækis samræmist reglugerð.
- að meta bíla eftir tjón s.s. kostnað og vinnuaðferð.
- að lagfæra bíla eftir tjón með því að t.d. sjóða, líma og undirbúa fyrir málun.
- að undirbúa viðgerð og gera við.
- að rétta burðargrind og mælir í réttingabekkjum.
- viðgerðir á dældum og slitum með því að sníða, skera og beygja málmplötur.
- að sjóða saman sniðstál í grind sem ber upp yfirbyggingu bifreiðar, vinnuvélar eða tengivagns.
- að breytinga bílum skv. teikningum.
- að setja saman íhluti (bretti, hurð, stuðari o.fl.) meðal annars með suðu og límingum.
- að sinna yfirborðsmeðferð eftir samsetningu. Með yfirborðsmeðferð gengur bifreiðasmiðurinn frá viðgerð undir málun.
Bifreiðasmíði er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtsskóla og grunndeildina er hægt að læra í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Vinnustaðir bifreiðasmíða eru eftirfarandi:
- bílaréttingarverkstæði,
- bílamálunverkstæði,
- bifreiðaverkstæði
- bílaumboð,
- söluaðilum.
Til að kanna laun bílasmiða er best að skoða heimasíðu SAMIÐNAR .
Námiğ
Leit
Mynd











