Bifvélavirki
Hefur þá áhuga á:
- bílum,
- bílaviðgerðum,
- vélum og gangverki þeirra,
- bilanaleit,
- tölvum,
- rafmagni.
Þá gæti starf bifvélavirkja verið fyrir þig.
Bifvélavirkjar vinna aðallega á bifreiðaverkstæðum við viðgerðir, viðhald og endurbætur á hvers kyns vélknúnum ökutækjum, vinnu í verslun sem selur ökutæki eða búnað þeim tengdum eða starfar við eftirlit með ökutækjum hjá fyrirtækjum og stofnunum.
Það sem bifvélavirki gerir er:
- að taka á móti ökutæki sem þarfnast viðgerðar eða eftirlits.
- að prófa ökutækið, leita að bilun og meta verkið í samræmi við lög og reglugerðir.
- að áætla kostnað og verktíma viðgerðar.
- að sérhæfa sig gjarnan í vinnu við ákveðnar bifreiðategundir eða vélarhluta.
- að vinna við gangverk bílsins s.s. gírkassa, vél, hemla, stýri, rafkerfi eða annan rafbúnað.
- að lagfæra eða skipta um vélræna hluti.
- bilanagreina rafbúnað.
- að gera við og endurgera vél eða einstaka vélarhluta
- að annast reglubundið eftirlit og ýmsar viðhaldsaðgerðir s.s. hreinsar, stillir, smyr o.s.frv.
- leitar að bilun með þar til gerðum tækjum, viðgerðabókum og teikningum
- að nota fullkomin tæki til mælinga og viðgerða á bílum s.s. tölvustýrð hjólstillitæki, tölvustýrður vélgreinir og tölvustýrður réttingabekkur.
Bifvélavirkjun er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtsskóla og Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Vinnustaðir bifvélavirkja eru eftirfarandi:
- bílaréttingarverkstæði,
- bílamálunverkstæði,
- bifreiðaverkstæði,
- bílaumboð,
- varahlutaverslun,
- sölustörf og ráðgjöf,
- skoðunarstöðum og eftirlitsstöðum,
- tryggingarfélögum og eftirlitsstofnunum.
Til að kanna laun bifvélavirkja er best að skoða heimasíðu SAMIÐNAR .
Námið
Leit
Mynd











