Kjötišnašarmašur
Hefur þá áhuga á:
- vöruþróun s.s. þróun á áleggi og grillvörum,
- gæðastjórnun og innra eftirliti.
Þá gæti starf kjötiðnaðarmanns verið fyrir þig.
Kjötiðnaðarmaður starfar við kjötvinnslu og í kjötdeildum verslana þar sem hann sér m.a. um uppröðun í kjötborð, sölu á matvælum og leiðsögn við neytendur.
Það sem kjötiðnaðarmaður gerir er að:
- fullvinna kjötvöru
- krydda og kryddleggja kjöt,
- útbúa kjöt og kjötrétti til sölu í kjötborði,
- gefa ráð og leiðsögn um meðferð hráefna.
- búa til fars, pylsur bæði soðnar og hráverkaðar, kæfu, paté, slátur og mismunandi álegg.
- vinna að gæðastjórnun og innra eftirliti matvælafyrirtækja.
- taka á móti afurðum til framleiðslunnar.
- vinnur við heilbrigðis- og gæðamat út frá viðteknum gæðastöðlum.
- saga og úrbeina kjötskrokka/sláturdýra og hlutar niður miðað við mismunandi nýtingaráform.
- verka kjöt og innmat með ýmsum aðferðum til að framleiða tilbúnar matvörur s.s. salta, reykja og sjóða kjöt.
- sölustörf.
Kjötiðn er löggilt iðngrein og er námið kennt í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi og Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Vinnustaðir kjötiðnaðarmanna eru eftirfarandi:
- kjötvinnslu,
- kjötdeildum verslana,
- við sölu og markaðssetningu á kjöti og matvælum,
- við sölu umbúða, krydda/hjálparefna, véla og tækja
- við opinbera þjónustu,
- sláturhús.
Til að kanna laun kjötiðnaðarmanna er best að skoða heimasíðu MATVÍS .
Nįmiš
Leit
Mynd











