Beint á leiğarkerfi vefsins

Leiğsögumağur

Hefur þú áhuga á:
- Íslandi,
- ferðalögum,
- Íslendingasögum,
- tungumálum,
- mannlegum samskiptum.

Þá gæti starf leiðsögumanns verið fyrir þig.

Leiðsögumaður fylgir innlendum og erlendum ferðamönnum um landið, fer með þá á merka staði og segir frá landi og þjóð.

Það sem leiðsögumaður gerir er að:
- úfærir skipulag frá ferðaskrifstofu eða öðum aðilum, s.s. gönguleiðir og áningarstaði.
- taka á móti erlendum ferðamönnum fyrir hönd ferðaskrifstofu og aðstoðar þá.
- ferðast með einstaklinga eða hópa, oftast í bíl en einnig fótgangandi, með skipi, flugvél, á hesti, vélsleða eða á skíðum.
- segja sögur og talar um það sem fyrir augu ber, skýrir t.d. jarðfræði, gróður og fleira.
- bregðast við slysi eða veikindum og sér um að koma viðkomandi undir læknis- hendur ef með þarf.
- sjá til þess að ferðaáætlun standist, að hópur komi á tilsettum tíma á gististað.
- hafar samstarf við starfsfólk á ferðaskrifstofum, hótelum og öðrum gististöðum, landverði, skálaverði, bílstjóra og starfsfólk þjónustustaða.

Nám leiðsögumann er kennt í Leiðsöguskóla Íslands við Menntaskólan í Kópavogi.

Vinnuveitendur leiðsögumanna eru eftirfarandi:
-ferðaskrifstofur,
-ferðaskipuleggjendur,
-
söfn,
-opinberar stofnanir,
-
einkafyrirtæki,
-skemmtigarðar,
-hvalaskoðunarfyrirtæki,
-
skólar og fleiri.

Til að kanna laun leiðsögumanna er best að fara á heimaíðu Félags leiðsögumanna

Hlutverk leiðsögumanna samkvæmt alþjóðlegri skilgreiningu World Federation of Tourist Guide Associations (WFTGA) og Federation of European Guide Associations (FEG):

-Leiðsögumaður ,,tourist guide"-miðlar staðbundnum fróðleik um menningu og náttúrufar til gesta, oftast á þeirra eigin tungumáli og hefur til þess réttindi, útgefin af þar til bærum yfirvöldum. 

Námiğ



Slóğin mín:

Störf

Heim

Forsíğa IĞUNNARIDAN.IS

Stjórnborğ

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda şessa síğu Prenta şessa síğu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd