Beint á leiðarkerfi vefsins

Bílamálari

Hefur þá áhuga á:
- bílum.
- bílamálun,
- bílaskreytingum eða merkingum.
- vinnu með liti.

Þá gæti starf bílamálara verið fyrir þig.

Bílamálarar vinna aðallega á bílaverkstæðum eða fyrirtækjum sem mála/sprauta á bifreiðar, vinnuvélar eða annarra hluta úr málmi. 

Það sem bílamálari gerir er að:
-
hanna eða gera uppdrátt af teikningu eða merkingu á ökutæki.
- meta kostnað og vinnuaðferð við verkið hvort sem það er eftir tjón eða til skreytingar.
- vinna eftir ákveðnu ferli til þess að ökutæki standist reglugerðir eftir sprautunina.
- undirbúa bíla fyrir sprautun eftir t.d. tjón eða ryð. Þá hreinsar hann burt öll óhreinindi s.s. fitu af fleti sem mála á með sérstökum leysiefnum og slípar til að fjarlægja ryð og gamalt lakk.
- fín vinna yfirborð bíls, grunna flötinn. Hann ryðver flötinn með grunnmálningu og jafnar yfirborð hans með spartli. Sprautar svo fínspartli með þrýstiloftssprautu á flötinn og vatnsslípar að lokum.
- blanda liti eftir uppskrift framleiðanda bifreiðarinnar eða finnur rétta litablöndu.
- þekkja vel blöndunareiginleika lita og litaafbrigða ásamt allskyns tækni við að ná fram mismunandi áferð á lakki bíla.
- blandar liti og sprautar nokkrar umferðir með málningarefni á flötinn og þurrkar.

Bílamálun er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtsskóla og Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Vinnustaðir bílamálara eru eftirfarandi:
- bílasprautunarverkstæði,
- bílaréttingarverkstæði,  
- bifreiðaverkstæði,
- bílaumboð,
- framhaldsskóla.

Til að kanna laun bílamálara er best að skoða heimasíðu SAMIÐNAR .

 

Námið



Slóðin mín:

Störf

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd