Beint á leiğarkerfi vefsins

Blikksmiğur

Hefur þú áhuga á:
- flóknum tölvustýrðum vélum,
- nýsmíði úr þunnmálmum,
- smíði og uppsetningu loftræsikerfa,
- klæðningu húsa,
- snyrtilegu og vel skipulögðu starfsumhverfi.

Þá gæti starf blikksmiðs verið fyrir þig .

Blikksmiðir vinna bæði innan- og utandyra.  

Það sem blikksmiður gerir er: 
- smíðar hluta loftræsikerfa og setur upp á byggingarstað.
- setur upp klæðningar á þök og veggi húsa.
- notar flóknar skurðar-, beygju- og völsunarvélar með tölvustýringum.
- kann skil á virkni tölvustýrðs stjórnbúnaðar í loftræsikerfum.
- staðsetur skynjara og nema fyrir hita- og rakastig á réttum stöðum í loftræsikerfi.
- hefur góða þekkingu á tölvum.
- hefur góða þekkingu á málmum, eiginleikum þeirra og vélum og verkfærum til málmvinnslu.
- gerir útflatninga, þ.e. teikningar þar sem þrívítt form er flatt út í tvívíða mynd.
- smíðar lofthita- og loftræsikerfi í byggingar eða skip.
- sérsmíðar eftir pöntunum ýmsa nytjahluti, t.d. tengivagna og eldvarnahurðir.
- notar blikksmíðavélar og ýmis verkfæri við vinnu sína.

Blikksmíði er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtskóla og í Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Vinnustaðir blikksmiða eru:
- blikksmiðjur.

Til að kanna laun blikksmiða er best að skoða heimasíðu VM (Félag vélstjóra og málmtæknimann) og SAMIÐNAR.

Námiğ



Slóğin mín:

Störf

Heim

Forsíğa IĞUNNARIDAN.IS

Stjórnborğ

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda şessa síğu Prenta şessa síğu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd