Matreiğslumağur
Hefur þá áhuga á:
- sígildri og nútímalegri matreiðslu,
- að útbúa matseðal,
- samspil hráefna,
- fjölbreytilegri matseld fyrir ólíka hópa,
- vinna með fjölbreytilegt hráefni,
- útbúa uppskriftir og elda eftir þeim.
Þá gæti starf matreiðslumanns verið fyrir þig.
Starfsvettvangur matreiðslumanna er þar sem seldar eru veitingar í atvinnuskyni, s.s. á hótelum, veitingahúsum, kaffihúsum og farþegaskipum. Verkefni matreiðslumanna eru fjölbreytt allt frá því að elda heimilislegan hversdagsmat til þess að útbúa fína margréttaða veislumáltíð.
Það sem matreiðslumaður gerir er að:
- elda og meðhöndla hráefni á fjölbreyttan hátt.
- leggja áherslu á gæði, hollustu, fjölbreytni og nýjungar.
- sinna sérhæfðum verkefnum s.s. sýningar og kynningar.
- matreiða allan mat.
- taka á móti hráefni, meðhöndlar það til geymslu.
- semja uppskriftir og vinna eftir þeim.
- semja matseðla fyrir hin ýmsu tilefni með hliðsjón af faglegum kröfum og hagkvæmni.
- þróa tilbúna rétti.
- sölustörf.
Matreiðsla er löggilt iðngrein og er kennd í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. og í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Vinnustaðir matreiðslumanna eru eftirfarandi:
- veitingahúsum,
- hótelum,
- mötuneytum,
- verslununum,
- skólum,
- skipum.
Til að kanna laun matreiðslumanna er best að skoða heimasíðu MATVÍS .
Námiğ
Leit
Mynd











