Múrari
Hefur þá áhuga á:
- að vinna með höndunum,
- fjölbreyttu starfi.
Þá gæti starf múrara verið fyrir þig.
Múrari vinnur við nýbyggingar bæði að utan og innan.
Það sem múrari gerir er að:
- lesa byggingarteikningar, velja viðeigandi efni.
- vera í samstarfi við hönnuði og aðra iðnaðarmenn.
- múrhúða byggingar inni og úti, veggi, gólf og loft, með múr-, sement-, kalk-, gipsblöndu eða
sandsparsli,
- líma og ganga frá einangrun á steypta fleti og undir gólfplötur,
- steypa og ganga frá steinsteyptum veggjum og loftum í og við nýbyggingar.
- leggja flísar og hlaða veggi, arna, leggja steypustyrktarjárn í veggi, loft og gólf, gera við skemmdir í
steypu, múrhúð eða flísum.
- steypa ýmsar einingar s.s. sólbekki, skrautlista og sturtubotna.
- sjá um járnalagnir í steinsteypu.
- framkvæms steypuviðgerðir og breytingar á steyptum, hlöðnum og forsköluðum mannvirkjum.
- sjá um viðhald og breytingar innanhúss
- að þekkja húsfriðunarlögin og sögulegt verðmæti mannvirkja.
- framkvæma alla hleðslu utanhúss úr s.s. tígulstein, holsteini, mátsteini og öðrum sambærilegum efnum,
t.d. plastkubbahús.
Múraraiðn er löggilt iðngrein og er kennd í Tækniskólinn.
Vinnustaðir múrara eru eftirfarandi:
- hjá múrarameisturum.
- stjórnunarstörf á byggingarvinnustöðum .
- afgreiðir í byggingavöruverslunum og gefur faglegar upplýsingar.
- verkfræðistofur t.d. við ráðgjöf vegna endurbygginga eldri steinhúsa.
Til að kanna laun múrara er best að skoða heimasíðu SAMIÐNAR.
Námið
Leit
Mynd











