Pípulagningamaður
Hefur þá áhuga á:
- að vinna með höndunum,
- fjölbreyttu starfi,
- snjóbræðslukerfum.
Þá gæti starf pípulagningamans verið fyrir þig.
Pípari setur upp og sér um viðhald á pípulögnum og tengdum búnaði innan húss og utan.
Það sem pípari gerir er að:
- leggja pípulagnir í íbúðar- og atvinnuhúsnæði, bæði hitakerfi, neyslukerfi og frárennsliskerfi.
- setja upp ofna, hreinlætistæki og önnur tæki sem tengjast viðkomandi kerfum s.s. hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu.
- sjá um viðhald og viðgerð á pípulagnakerfum.
- setja upp ýmsan sérhæfðan búnað og lagnir s.s. vatnsslökvikerfi, gas-, gufu- og olíulagnir.
- leggja snjóbræðslukerfi í götur, torg, gangstéttir, bílastæði, tröppur og gervigrasvelli.
- leggja hitakerfi í grasvelli, matjurtagarða, gróðurhús og gróðurbeð.
- leggja vatnsúða- og eldvarnakerfi.
- setur upp stjórnbúnað fyrir hitakerfi og stillir kerfið.
- vinna með hönnuðum lagnakerfa og öðrum iðnaðarmönnum.
- setja upp frystitæki í iðnfyrirtækjum og frystihúsum og annast vatnslagnir í skipum.
Pípulagnir er löggilt iðngrein og er kennd í Iðnskólanum í Hafnarfirði og Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Vinnustaðir pipara eru eftirfarandi:
- hjá pípulagningarmeisturum.
- hjá orkufyrirtækjum.
- einkareknum pípulagningarþjónustum.
- veitustofnunum.
- sölumaður í verslun sem veitir faglega ráðgjöf.
- hjá ríkinu.
Til að kanna laun pípulagningamanna er best að skoða heimasíðu SAMIÐNAR.
Námið
Leit
Mynd











