Prentari
Hefur þú áhuga á að:
- vinna við tölvustýrðar vélar,
- vinna innan upplýsinga- og fjölmiðlasviðs,
- starfa með hönnuðum.
Þá gæti starf prentara verið eitthvað fyrir þig.
Prentari prentar blöð, bækur, bæklinga, umslög, auglýsingar og fleira. Öll prentvinna er í þeirra höndum s.s. dagblöðum, tímaritum, bæklingum, umbúðum, vörumerkingum og merkimiðum.
Það sem prentari gerir er:
- tekur við verki á prentplötu, myndamóti eða í tölvutæku formi, stillir verkið og pappírinn inn í prentvél, stillir litaáferð og prentar verkið.
- tryggir prentgæði.
- sér um rekstur prentvélbúnaðar.
- sér um umhirðu prentvéla, þrif og stillingar.
- er í samskiptum við annað fagfólk svo sem grafíska miðlara og hönnuði, teiknara, ljósmyndara, fjölmiðlatækna og bókbindara.
Prentun er löggilt iðngrein og er kennd í Tækniskólinn.
Vinnustaðir prentara eru eftirfarandi:
- blaðaprentsmiðjum.
- almennum prentsmiðjum.
Til að kanna laun prentara er best að skoða http://fbm.is/kjaramal.
Námiğ
Leit
Mynd











