Beint á leiğarkerfi vefsins

Rafveituvirki

Hefur þú áhuga á:
- viðgerðum,
- vinna með höndunum,
- útivinnu,
- raforku.

Þá getur starf rafveituvirkja verið fyrir þig.

Rafveituvirki starfar við dreifingu raforku frá orkuveri til notenda, stofnlínur, dreifilínur, aðveitustöðvar, jarðstrengskerfi og götulýsingu.

Það sem rafveituvirki gerir er:
- reisir háspennumöstur eða staura og strengir línur á milli þeirra.
- grefur streng í jörð og setur upp aukabúnað.
- vinnur eftir teikningum og kortum.
- sér um viðhald á veitukerfi eins og gerir við bilaða strengi, strekkir á loftlínum, afísar og skiptir um víra.
- setur upp dreifispenna, aðveitu- og spennistöðvar og kemur fyrir stýris- og öryggisbúnaði.
- mælir viðnám í raforkuveri, aðveitustöð, spennistöð eða línulagningu.

Rafveituvirkjun er löggilt iðngrein og er kennd í Tækniskólinn.

Til að kanna laun rafveituvirkja er best að skoða heimasíðu Rafiðnaðarsambands Íslands.

Námiğ



Slóğin mín:

Störf

Heim

Forsíğa IĞUNNARIDAN.IS

Stjórnborğ

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda şessa síğu Prenta şessa síğu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd