Beint á leiğarkerfi vefsins

Rafvirki

Hefur þá áhuga á:
- rafmagni
- raflögnum
- stýringum
- forritanlegum stýrikerfum
- tölvum

Þá gæti starf rafvirkja höfðað til þín.

Rafvirki starfar á verkstæðum, í nýbyggingum, iðnfyrirtækjum eða iðjuverum við uppsetningu, viðhald, viðgerðir og eftirlti með rafbúnaði til vinnslu og dreifingar á raforku, raftækum og rafkerfjum. Rétt til starfa í rafvirkjun eiga þeir sem leyst hafa til sín sveinsbréf sem iðnaðarráðherra gefur út.

Rafvirki:
·         getur annast raflagnir og eftirlit með raflögnum og búnaði ásamt viðhaldi og endurbótum eldri raflagna, í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla
·         kann að magntaka, vinna verkáætlanir fyrir verkefni og færa verkdagbækur og vinnuseðla
·         getur annast bilanaleit í rafbúnaði og rafleiðslum m.a. með hjálp mælitækja
·         getur sett upp og tengt rafbúnað í rafmagnstöflum og tengt raflagnir við rafmagnstæki
·         getur hannað raflagnir fyrir uppsetningu rafbúnaðar, bilanaleit og viðhald og skilað inn reyndarteikningum af raflögnum
·         getur annast uppsetningu og viðhald hverskonar raftækja, iðntölvustýringa og stýribúnaðar í iðnfyrirtækjum og iðjuverum
·         þekkir rafeindabúnað sem notaður er til aflstýringa, þekkir tákn og teikningar, getur fundið bilanir og lagfært þær
·         getur starfað við uppsetningu rafala, spennu- og dreifivirkja í raforkuverum
·         kann skil á  þeirri segulvirkni sem rafvélar byggja á og gerir sér grein fyrir  myndun segulsviða og áhrifa þeirra á rafbúnað
·         þekkir helstu hugtök er varða hita og loftræstikerfi
·         þekkir mismunandi skynjun á hita og helstu reglunaraðferðir
·         getur veitt þjónustu og annast viðhald rafvéla og raftækja ásamt nýlögnum og rekstri rafkerfa í farartækjum á sjó í samræmi við staðla
·         þekkir öryggisþætti í rafiðnaði, s.s neyðarrofa, neyðarstopp, snertihættu
·          getur forritað og gengið frá forritanlegum raflagnakerfum og leiðbeint um notkun slíkra kerfa.
·          þekkir lýsingarkerfi
·          getur unnið við raflagnir stærri húsveitna og iðnaðarhúsnæðis og þekkir varnarráðstafanir í húsveitum, virkni og prófun
·          getur gengið frá öllum innanhúslögnum fyrir boðskiptalagnir, tengt endabúnað og kannað áreiðanleika kerfanna
·          getur sett upp, tengt og gengið frá algengustu loftnets-, kall-, merkja- og aðvörunarkerfum, stillt þau og leiðbeint um notkun þeirra.

Rafvirkjun er löggilt iðngrein sem er kennd í Tækniskólanum, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Iðnskólanum í Hafnarfirði, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi, Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra á Sauðárkrók, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Til að kanna laun rafvirkja er best að skoða heimasíðu Rafiðnaðarsambands Íslands.

Námiğ



Slóğin mín:

Störf

Heim

Forsíğa IĞUNNARIDAN.IS

Stjórnborğ

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda şessa síğu Prenta şessa síğu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd