Rennismiğur
Hefur þú áhuga á að:
- smíða málmhluti í tölvustýrðum vélum,
- forrita fræsara og tölvurennibekki sem notaðir eru við tölvurennismíði,
- smíða skrautmuni úr málmi,
- starfa með hönnuðum.
Þá gæti starf rennismiðs verið fyrir þig.
Rennismiðir starfa aðallega í vélsmiðjum, rennismíðaverkstæðum og öðrum málmiðnaðarfyrirtækjum.
Það sem rennismiður gerir er:
- hannar, formar og mótar ýmsa málmhluti.
- smíðar vélar t.d. fyrir matvælavinnslu.
- smíðar málmhluta í vélar sem notaðar eru til sjós og lands.
- forritar tölvustýrðar vélar eins og rennibekki og fræsara.
- stjórnar gæðaeftirliti og mælingum á framleiðslu hlutanna sem verið er að renna.
- hefur haldgóða þekkingu á tölvum.
- þekkir vel málmtegundir, vélar og verkfæri sem hann vinnur við.
- smíðar aðallega úr málmum og málmblöndum en einnig úr plasti, næloni og tré.
- smíðar m.a. öxla, hjól, tannhjól, gorma, fjaðrir og legur, bitastál til nota í rennismíði, auk skrautmuna.
- hefur samstarf við aðra málm- og véltæknimenn, vélstjóra, rafvélavirkja og hönnuði.
- notar við vinnu sína spóntökuvélar (rennibekk, fræsara, borvél, slípivél og hefil), suðutæki og aðrar málmvinnsluvélar, ýmis handverkværi, rennimál, míkrómæli og önnur nákvæm mælitæki, slípirokka, handborvélar og hjálparefni, s.s. skurðolíu.
Rennismíði er löggilt iðngrein og er kennd í Borgarholtsskóli og Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Vinnustaðir rennismiða eru renniverkstæði eða vélaverkstæði.
Til að kanna laun rennismiða er best að skoða heimasíðu VM (Félag vélstjóra og málmtæknimann).
Námiğ
Leit
Mynd









