Símsmiğur
Hefur þú áhuga á:
- að tengja saman tæki,
- vinna með höndunum,
- tölvum.
Þá getur starf símsmiðs verið fyrir þig.
Símsmiður leggur símastrengi í jörð, tengir við inntakskassa og þaðan inn í hús. Þeir leggja símalínur innanhúss og tengja við símtæki, tölvur o.fl.
Það sem símsmiður gerir er:- leggur streng í jörð eða hús, setur upp tengigrindur og tengir við jarðsímakerfi.
- setur upp og kennir notendum á notendabúnað svo sem símstöð og símtæki.
- leggur og tengir kapalkerfi s.s. tölvukerfi og tölvunet.
- gerir við bilun í streng.
- sér um viðhald á notendabúnaði.
- mælir upp og teiknar afstöðumynd af gömlum og nýjum jarðsímalögnum.
Símsmíði er löggilt iðngrein og er kennd í Tækniskólinn.
Til að kanna laun símsmiðs er best að skoða heimasíðu Rafiðnaðarsambands Íslands.
Námiğ
Leit
Mynd









