Beint á leiðarkerfi vefsins

Bygginga- og mannvirkjagreinar

Nám í bygginga- og mannvirkjagreinum hefst með einnar annar sameiginlegu grunnnámi bygginga og mannvirkjagreina en að því loknu velja nemendur sérnám í húsasmíði, húsgagnasmíði, málaraiðn, múraraiðn, pípulögnum eða veggfóðrun og dúkalögn. Sérnámið skiptist annars vegar í bóklegt og verklegt nám í skóla og hins vegar vinnustaðanám:

Breytingar á námsskrá byggingagreina tóku gildi skólaárið 2004 - 2005.

Námsamningur er ekki gerður fyrr en grunnnámi byggingagreina er lokið. Vinnustaðanám skal tekið á viðurkenndum vinnustað og undir stjórn iðnmeistara í viðkomandi iðngrein. Gera skal samkomulag um vinnustaðanám áður en það hefst. Heimilt er að meta vinnutíma hjá meistara að hámarki sex mánuði fyrir gerð námssamnings. Verktakavinna er ekki metin.

Þessi fyrirtæki hafa verið með nema í vinnustaðanámi.

Upplýsingar um sveinspróf í bygginga- og mannvirkjagreinum er að finna undir hverri grein.
Sveinspróf í húsasmíði og pípulögnum eru haldin tvisvar á ári í desember og maí. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember og 1. april

Sveinspróf í málaraiðn, múraraiðn, húsgagnasmíði og veggfóðrun og dúkalögn eru haldin í maí hvert ár ef næg þátttaka fæst. Umsóknarfrestur er til 1.april.


Eyðublað fyrir vinnuvottorð vegna námssamnings
Eyðublað vegna riftunar á námssamningi
Umsókn um sveinspróf
Eyðublað fyrir umsókn um gerð námssamnings
Smelltu hér til að sækja Adobe Acrobat Reader

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd